Samband

Samband

Fyrirspurnir fara beint til Andra, sem vinnur verkið. Stutt lýsing á kerfinu og tímarammi duga til að byrja.

01 / Fyrirspurn

Segðu Garmi hvað á að prófa.

Eyðublaðið útbýr drög í tölvupóstforritinu þínu. Farðu yfir þau og sendu póstinn þaðan. Ekkert er sent sjálfkrafa og vefurinn vistar ekkert af því sem þú skrifar. Ekki senda lykilorð, aðgangstákn eða önnur viðkvæm gögn í fyrstu fyrirspurn.

Ekkert tölvupóstforrit? Afritaðu upplýsingarnar.

Límdu upplýsingarnar í nýjan tölvupóst og sendu á andri@kastro.is.

02 / Spurt og svarað

Stutt svör.

Þarf skriflega heimild?

Já. Engin prófun hefst án skriflegrar heimildar frá þeim sem má veita hana.

Hver vinnur verkið?

Andri Pétur Hafþórsson, sjálfur. Þú ert í beinu sambandi við hann frá fyrstu fyrirspurn til yfirferðar.

Er endurprófun innifalin?

Í afmörkuðum pökkum er ein endurprófun innifalin. Í öðrum verkefnum er hún boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar. Garmur endurprófar líka veikleika úr skýrslu annars prófara.

Hvað kostar prófun?

Það ræðst af umfanginu. Engin verðskrá: fast verðtilboð fylgir afmörkun.