Þjónusta

Þjónusta

Garmur prófar varnir með því að ráðast á þær. Með leyfi. Innan afmarkaðs umfangs. Þrettán þjónustur í fjórum flokkum.

Prófanir

Ráðist á kerfin með leyfi. Niðurstaðan er sönnun, ekki ágiskun.

01 · Penetration testing

Innbrotsprófanir

Afmörkuð og heimiluð tilraun til að brjótast inn í kerfin þín, einnig með aðstoð gervigreindar. Þú færð veikleikana, sönnun þess að þeir virki og ráð til að loka þeim.

02 · Fixed-scope test packages

Afmarkaðir prófunarpakkar

Innbrotsprófun með fyrirfram ákveðnu umfangi. Ljóst hvað er inni og hvað er úti. Ein endurprófun innifalin.

03 · API testing

Prófun forritaskila

Forritaskil prófuð sér: auðkenning, heimildir og það sem gerist þegar köllin eru ekki eins og til stóð.

04 · AI and LLM application testing

Prófun gervigreindar­kerfa

Kerfi sem byggja á mállíkönum prófuð eins og önnur kerfi, og að auki þar sem þau eru öðruvísi: kvaðningar, gögn, verkfæri og aðgangur.

05 · Physical penetration testing

Raunlægar innbrotsprófanir

Prófun á því hvort hægt sé að komast inn í húsnæði og að búnaði án heimildar. Hurðir, aðgangsstýring og verklag eru líka varnir.

06 · Vulnerability scanning

Veikleikaskönnun

Kerfisbundin leit að þekktum veikleikum og rangstillingum. Breiðari en innbrotsprófun og grynnri. Sýnir hvað stendur opið, ekki hversu langt er hægt að komast.

07 · Retest of findings

Endurprófun

Staðfesting á því að veikleikar hafi verið lagaðir. Líka veikleikar úr skýrslu annars prófara.

Úttektir og yfirferðir

Staðan borin saman við viðmið. Engin árás.

08 · Security audits

Öryggisúttektir

Kerfisbundin yfirferð á stillingum, aðgangi og verklagi, borin saman við þær kröfur sem þú þarft að standast.

09 · Cloud configuration review

Yfirferð skýjastillinga

Stillingar í AWS, Azure og Microsoft 365 yfirfarnar með lesaðgangi: hver kemst inn, hvað snýr út og hvað skilur eftir sig spor.

10 · Security and resilience reviews

Öryggi og viðnámsþróttur

Afmarkaðar öryggisyfirferðir og hagnýtar úrbætur á aðgangsstýringu, tölvupósti og vernd gagna.

11 · Audit readiness

Undirbúningur úttekta

Aðstoð við að skipuleggja gögn, greina frávik og undirbúa mat á upplýsingaöryggi og stjórnun gervigreindar.

Vöktun

Í áskrift. Byggð á verkfærum Garms.

12 · External attack-surface monitoring

Vöktun ytri árásarflatar

Áskrift. Garmur fylgist með því sem lénin þín og vistföngin sýna út á við og lætur vita þegar það breytist. Byggt á Critical.is, Dmark og Fetch.

Fræðsla

Stuttar lotur fyrir afmarkaða hópa.

13 · Training sessions

Stuttar fræðslulotur

Stuttar lotur fyrir forritara, kerfisstjóra og stjórnendur. Efnið kemur úr prófunum, ekki úr glærusafni.

01 / Ferlið

Frá umfangi til skýrslu.

  1. Áfangi 01

    Umfang

    Ákveðið í sameiningu: hvað er prófað, hvað ekki og hvers vegna. Skriflegt áður en nokkuð er snert.

  2. Áfangi 02

    Heimild

    Skrifleg heimild frá þeim sem má veita hana. Án hennar hefst engin prófun.

  3. Áfangi 03

    Framkvæmd

    Andri framkvæmir prófunina sjálfur. Innan umsamins umfangs.

  4. Áfangi 04

    Skýrsla

    Hver veikleiki skráður. Sönnun þess að hann virki. Ráðlegging um lagfæringu.

  5. Áfangi 05

    Yfirferð

    Andri fer sjálfur yfir niðurstöðurnar með þér, lið fyrir lið. Ljóst hvað þarf að laga fyrst.

Reglur um framkvæmd

  1. Regla 01

    Skrifleg heimild. Engin prófun hefst án hennar.

  2. Regla 02

    Nafngreint umfang. Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.

  3. Regla 03

    Sönnun. Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.

02 / Yfirlit

Þjónusta og regluverk

Merkt er þar sem niðurstöður þjónustunnar eru að jafnaði notaðar sem gögn. Merking þýðir ekki að krafa sé uppfyllt.

ÞjónustaNIS2DORAISO/IEC 27001PCI DSSGDPR
InnbrotsprófanirStyður viðStyður viðStyður viðStyður viðStyður við
Afmarkaðir prófunarpakkarStyður viðStyður viðStyður viðStyður viðStyður við
Prófun forritaskilaStyður viðStyður viðStyður viðStyður viðStyður við
Prófun gervigreindar­kerfaStyður viðStyður viðStyður viðEkki merktStyður við
Raunlægar innbrotsprófanirStyður viðStyður viðStyður viðStyður viðEkki merkt
VeikleikaskönnunStyður viðStyður viðStyður viðEkki merktStyður við
EndurprófunStyður viðStyður viðStyður viðStyður viðEkki merkt
ÖryggisúttektirStyður viðStyður viðStyður viðEkki merktStyður við
Yfirferð skýjastillingaStyður viðStyður viðStyður viðEkki merktStyður við
Öryggi og viðnámsþrótturStyður viðEkki merktStyður viðEkki merktStyður við
Undirbúningur úttektaEkki merktEkki merktStyður viðEkki merktEkki merkt
Vöktun ytri árásarflatarStyður viðStyður viðStyður viðEkki merktEkki merkt
Stuttar fræðsluloturStyður viðStyður viðStyður viðStyður viðEkki merkt

Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.

Ertu með kerfi sem þarf að prófa?

Bóka samtal