Þjónusta / 06 · Vulnerability scanning

Veikleikaskönnun

Veikleikaskönnun leitar kerfisbundið að þekktum veikleikum og rangstillingum. Breiðari en innbrotsprófun og grynnri. Hún sýnir hvað stendur opið, ekki hversu langt er hægt að komast inn.

Framkvæmd
Andri Pétur Hafþórsson
Umfang
Afmarkað skriflega fyrir hvert verkefni
Heimild
Skrifleg, áður en prófun hefst
Afurð
Skýrsla með sönnun og ráðleggingum
Verð
Fast tilboð eftir afmörkun

01 / Umfang

Hvað felst í skönnuninni

01

Þekktir veikleikar

Leitað er að veikleikum sem þegar eru þekktir og skráðir, í þeim kerfum sem umfangið nær til.

02

Rangstillingar

Stillingar sem opna meira en til stóð, til dæmis þjónustur sem snúa út á netið að óþörfu.

03

Niðurstöður sem má vinna úr

Þú færð skýrslu um það sem fannst ásamt ráðleggingum um lagfæringu.

02 / Reglur

Reglur um framkvæmd

Regla 01

Skrifleg heimild

Engin prófun hefst án hennar.

Regla 02

Nafngreint umfang

Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.

Regla 03

Sönnun

Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.

03 / Verkefnið

Umfang, lengd og það sem þarf

Dæmi um umfang

  • Öll vistföng sem snúa út á netið.
  • Eitt innra netbil.
  • Tiltekinn hópur netþjóna.

Hvað ræður lengd

Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.

  • Stærð umfangsins: fjöldi kerfa, hlutverka og vistfanga.
  • Hversu flókið kerfið er og hversu vel það er skjalað.
  • Hvort aðgangar og gögn eru til reiðu þegar vinna hefst.

Það sem þú leggur til

  • Lista yfir vistföng og lén.
  • Skriflega heimild.
  • Tengilið sem veit hvenær skönnun fer fram.

Endurprófun

Afmarkaðir pakkar innihalda eina endurprófun. Í öðrum verkefnum er endurprófun boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.

Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.

Lægra verðtilboð býðst ef þú samþykkir skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið megi nota ódýrari gervigreindarlíkön þar sem rekstraraðili líkansins getur geymt það sem því er sent. Sjá spurt og svarað.

04 / Afurðir

Það sem þú færð

  • Skýrsla um alla veikleika sem fundust
  • Sönnun fyrir hverjum veikleika
  • Ráðleggingar um lagfæringu
  • Yfirferð á niðurstöðunum með þér
Sjá dæmi um skýrslu
Færsla í skýrsluUppbygging
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað:       lýsing á veikleikanum
hvar:       kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun:     hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring:  ráðlegging um úrbætur

05 / Hlíting

Hvað niðurstöðurnar styðja

Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:

NIS2
Ráðstafanir skulu prófaðar og virkni þeirra metin, veikleikar meðhöndlaðir og starfsfólk þjálfað (21. gr.).
DORA
Prófunaráætlun fyrir upplýsingakerfi, þar á meðal veikleikamat og innbrotsprófanir (24. og 25. gr.). Ógnamiðaðar prófanir (TLPT, 26. gr.) lúta sérstökum kröfum og falla utan þessa yfirlits.
ISO/IEC 27001
Stýringar í viðauka A um tæknilega veikleika, öryggisprófanir, óháða rýni og fræðslu.
GDPR
Regluleg prófun og mat á öryggi vinnslu persónuupplýsinga (32. gr.).

Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.

06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Um Andra

Viltu vita hvað stendur opið?