Afmarkað skotmark
Prófunin beinist að þeim kerfum sem þú tilgreinir og engu öðru. Umfangið er ákveðið fyrir hvert verkefni.
Þjónusta / 01 · Penetration testing
Garmur prófar kerfin eins og árásaraðili myndi gera, innan afmörkunar sem þú samþykkir fyrirfram. Markmiðið er ekki listi úr skanna. Markmiðið er svar við einni spurningu: hversu langt kemst sá sem vill inn?
01 / Umfang
Prófunin beinist að þeim kerfum sem þú tilgreinir og engu öðru. Umfangið er ákveðið fyrir hvert verkefni.
Veikleikar eru ekki bara taldir upp. Reynt er að nýta þá. Þannig sést hvað þeir gera mögulegt.
Gervigreind er notuð til stuðnings þar sem hún nýtist. Andri stýrir prófuninni. Hann metur sjálfur hvað telst veikleiki.
02 / Reglur
Engin prófun hefst án hennar.
Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.
Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
03 / Verkefnið
Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.
Afmarkaðir pakkar innihalda eina endurprófun. Í öðrum verkefnum er endurprófun boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.
Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.
Lægra verðtilboð býðst ef þú samþykkir skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið megi nota ódýrari gervigreindarlíkön þar sem rekstraraðili líkansins getur geymt það sem því er sent. Sjá spurt og svarað.
04 / Afurðir
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað: lýsing á veikleikanum
hvar: kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun: hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring: ráðlegging um úrbætur05 / Hlíting
Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:
Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.
06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Um Andra