Innbrotsprófanir
Afmörkuð og heimiluð tilraun til að brjótast inn í kerfin þín, einnig með aðstoð gervigreindar. Þú færð veikleikana, sönnun þess að þeir virki og ráð til að loka þeim.
NánarGeyr nú Garmur mjög fyrir Gnipahelli
Sigaðu Garmi á kerfin þín.
Innbrotsprófanir með skriflegri heimild, áður en einhver annar brýst inn án hennar.
Bóka samtal00 / Hlutverk
Garmur sinnir innbrotsprófunum, veikleikaskönnun, raunlægum innbrotsprófunum og öryggisúttektum og gefur út eigin öryggisrannsóknir og ókeypis verkfæri.
01 / Þjónusta
Afmörkuð og heimiluð tilraun til að brjótast inn í kerfin þín, einnig með aðstoð gervigreindar. Þú færð veikleikana, sönnun þess að þeir virki og ráð til að loka þeim.
NánarInnbrotsprófun með fyrirfram ákveðnu umfangi. Ljóst hvað er inni og hvað er úti. Ein endurprófun innifalin.
NánarKerfi sem byggja á mállíkönum prófuð eins og önnur kerfi, og að auki þar sem þau eru öðruvísi: kvaðningar, gögn, verkfæri og aðgangur.
NánarPrófun á því hvort hægt sé að komast inn í húsnæði og að búnaði án heimildar. Hurðir, aðgangsstýring og verklag eru líka varnir.
Nánar02 / Ferlið
Ákveðið í sameiningu: hvað er prófað, hvað ekki og hvers vegna. Skriflegt áður en nokkuð er snert.
Skrifleg heimild frá þeim sem má veita hana. Án hennar hefst engin prófun.
Andri framkvæmir prófunina sjálfur. Innan umsamins umfangs.
Hver veikleiki skráður. Sönnun þess að hann virki. Ráðlegging um lagfæringu.
Andri fer sjálfur yfir niðurstöðurnar með þér, lið fyrir lið. Ljóst hvað þarf að laga fyrst.
Skrifleg heimild. Engin prófun hefst án hennar.
Nafngreint umfang. Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.
Sönnun. Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
03 / Maðurinn

Prófari og ábyrgðarmaður
Andri vinnur við kerfisstjórnun, tækniinnviði, netöryggi og hugbúnaðarþróun. Bakgrunnur hans nær meðal annars yfir upplýsingatækni fyrirtækja, flugumferðarstjórnarkerfi og tæknilega forystu hjá RVX.
Andri framkvæmir prófanirnar sjálfur. Hann hefur reynslu af innbrotsprófunum, gervigreindarstuddum innbrotsprófunum, veikleikaskönnun, raunlægum innbrotsprófunum og úttektum.
Þessi réttindi og reynsla tilheyra Andra. Þau fela ekki í sér vottun á Garmi eða þjónustu Garms.
Um Andra05 / Verkfæri
Daglegt yfirlit yfir alvarlega veikleika (CVSS 9,0 og hærra), raðað eftir því hvort verið sé að misnota þá í raun. Allt sem liggur að baki einkunninni er sýnilegt.
Opna critical.isVinnusvæði fyrir lénin þín. Keyrðu prófanir á SPF, DKIM, DMARC og BIMI, skoðaðu færslurnar og vinndu þig í gegnum það sem þarf að laga.
Opna dmark.isOpinberar upplýsingar um lén eða IP-tölu á einum stað: WHOIS, DNS, TLS-skilríki, auðkenning tölvupósts, GeoIP, ASN og bakvísun (reverse DNS).
Opna lookup.kastro.isChromium-viðbót sem reynir að maska valin nöfn, kennitölur og leyndarmál á tækinu áður en skilaboð fara til gervigreindarspjalls og setur þau svo aftur inn í svarið.
Opna dmz.is06 / Spurt og svarað
Já. Engin prófun hefst án skriflegrar heimildar frá þeim sem má veita hana.
Andri Pétur Hafþórsson, sjálfur. Þú ert í beinu sambandi við hann frá fyrstu fyrirspurn til yfirferðar.
Í afmörkuðum pökkum er ein endurprófun innifalin. Í öðrum verkefnum er hún boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar. Garmur endurprófar líka veikleika úr skýrslu annars prófara.
Það ræðst af umfanginu. Engin verðskrá: fast verðtilboð fylgir afmörkun.
07 / Samband
Stutt lýsing á kerfinu og tímarammi duga til að byrja. Fyrsta svarið verður spurningar, ekki sölukynning.
Bóka samtalGeyr nú Garmur mjög
fyrir Gnipahelli,
festur mun slitna,
en freki renna.Völuspá