Rannsóknir / Vettvangsrannsókn ·
Hunang: hunangsgildra fyrir SSH og Telnet
Hvað fannst
Hunang var hunangsgildra fyrir SSH og Telnet sem sneri út á netið frá 6. ágúst til 25. september 2026. Fyrsta skráða árásin kom 23 sekúndum eftir að gildran fór í loftið.
Umferðin var sjálfvirk og ómarkviss: forrit sem prófa sjálfgefin aðgangsorð á öllu IPv4-vistfangarýminu. Skýrslan sýnir umfang árása, upprunalönd og net, ágiskanir á aðgangsorð og hegðun flokkaða eftir MITRE ATT&CK. Upprunavistföng fengu gerviauðkenni við móttöku.
Hvers vegna það skiptir máli
Þetta er ekki merki um að fær árásaraðili hafi valið sér skotmark. Þetta er bakgrunnshávaði sem lendir á hverri vél sem tengist netinu. Sá hávaði er ástæðan fyrir því að sjálfgefin aðgangsorð og opnar stjórnunargáttir enda með innbroti.
Hvað á að gera
Engin sjálfgefin aðgangsorð. Engar stjórnunargáttir opnar út á netið að óþörfu. Hunang tengdi hvern árásarflokk við þá einföldu ráðstöfun sem stöðvar hann.
Hvernig Garmur prófar þetta
Veikleikaskönnun leitar að þjónustum sem snúa út á netið að óþörfu, SSH og Telnet þar á meðal. Innbrotsprófun sýnir hvað fæst með því að komast inn um þær.