Þjónusta / 08 · Security audits

Öryggisúttektir

Öryggisúttekt ber stöðuna saman við viðmið: kröfur staðals, eigin reglur eða góðar venjur. Niðurstaðan: hvar þú stendur og hvað vantar upp á.

Framkvæmd
Andri Pétur Hafþórsson
Umfang
Afmarkað skriflega fyrir hvert verkefni
Heimild
Skrifleg, áður en prófun hefst
Afurð
Skýrsla með sönnun og ráðleggingum
Verð
Fast tilboð eftir afmörkun

01 / Umfang

Hvað felst í úttektinni

01

Stillingar og aðgangur

Yfirferð á því hvernig kerfin eru sett upp og hver hefur aðgang að hverju.

02

Verklag og skjölun

Hvort það sem stendur í reglunum sé það sem gert er í raun.

03

Frávik

Hvert frávik er skráð með gögnum sem sýna það og ráðleggingu um úrbætur.

02 / Reglur

Reglur um framkvæmd

Regla 01

Skrifleg heimild

Engin prófun hefst án hennar.

Regla 02

Nafngreint umfang

Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.

Regla 03

Sönnun

Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.

03 / Verkefnið

Umfang, lengd og það sem þarf

Dæmi um umfang

  • Eitt kerfi borið saman við eigin öryggisreglur.
  • Aðgangsstýring borin saman við kröfur staðals.

Hvað ræður lengd

Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.

  • Stærð umfangsins: fjöldi kerfa, hlutverka og vistfanga.
  • Hversu flókið kerfið er og hversu vel það er skjalað.
  • Hvort aðgangar og gögn eru til reiðu þegar vinna hefst.

Það sem þú leggur til

  • Viðmiðið: staðal, reglur eða kröfur.
  • Lesaðgang að stillingum og skjölun.
  • Tengilið sem þekkir verklagið.

Endurprófun

Afmarkaðir pakkar innihalda eina endurprófun. Í öðrum verkefnum er endurprófun boðin með tilboðinu eða pöntuð sér. Innifalin endurprófun stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.

Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.

04 / Afurðir

Það sem þú færð

  • Skýrsla um alla veikleika sem fundust
  • Sönnun fyrir hverjum veikleika
  • Ráðleggingar um lagfæringu
  • Yfirferð á niðurstöðunum með þér
Sjá dæmi um skýrslu
Færsla í skýrsluUppbygging
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað:       lýsing á veikleikanum
hvar:       kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun:     hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring:  ráðlegging um úrbætur

05 / Hlíting

Hvað niðurstöðurnar styðja

Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:

NIS2
Ráðstafanir skulu prófaðar og virkni þeirra metin, veikleikar meðhöndlaðir og starfsfólk þjálfað (21. gr.).
DORA
Prófunaráætlun fyrir upplýsingakerfi, þar á meðal veikleikamat og innbrotsprófanir (24. og 25. gr.). Ógnamiðaðar prófanir (TLPT, 26. gr.) lúta sérstökum kröfum og falla utan þessa yfirlits.
ISO/IEC 27001
Stýringar í viðauka A um tæknilega veikleika, öryggisprófanir, óháða rýni og fræðslu.
GDPR
Regluleg prófun og mat á öryggi vinnslu persónuupplýsinga (32. gr.).

Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.

06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Um Andra

Þarftu að vita hvar þú stendur?