Þjónusta / 10 · Security and resilience reviews

Öryggi og viðnámsþróttur

Afmarkaðar öryggisyfirferðir og hagnýtar úrbætur á aðgangsstýringu, tölvupósti og vernd gagna. Ráðgjöf, ekki árás: farið er yfir stöðuna með þér og því forgangsraðað sem skiptir mestu.

Framkvæmd
Andri Pétur Hafþórsson
Umfang
Afmarkað skriflega fyrir hvert verkefni
Afurð
Skriflegar niðurstöður og næstu skref
Verð
Fast tilboð eftir afmörkun

01 / Umfang

Hvað er skoðað

01

Öryggisyfirferð

Yfirferð aðganga, heimilda og stillinga ásamt forgangsröðun mikilvægustu úrbóta.

02

Tölvupóstur og lén

Mat á SPF-, DKIM- og DMARC-stillingum og aðstoð við að framkvæma samþykktar breytingar.

03

Afritun og endurheimt

Yfirferð afritunar og skipulagning endurheimtarprófana svo hægt sé að sannreyna forsendur.

04

Verklag og vitund

Skýrar öryggisreglur og ábyrgð sem nýtast fólkinu í fyrirtækinu.

02 / Aðferð

Hvernig er unnið

01

Umfang

Stutt samtal um stöðuna og hvað þig vantar. Skriflegt umfang áður en nokkuð hefst.

02

Vinna

Yfirferðin sem samið var um. Engu er breytt utan umfangsins.

03

Afhending

Skriflegar niðurstöður. Forgangsraðaður listi yfir næstu skref. Yfirferð með þér.

03 / Verkefnið

Umfang, lengd og það sem þarf

Dæmi um umfang

  • Aðgangar og heimildir í einu umhverfi.
  • Tölvupóstur og lén: SPF, DKIM og DMARC.
  • Afritun og áætlun um endurheimt.

Hvað ræður lengd

  • Stærð umfangsins: fjöldi kerfa, hlutverka og vistfanga.
  • Hversu flókið kerfið er og hversu vel það er skjalað.
  • Hvort aðgangar og gögn eru til reiðu þegar vinna hefst.

Það sem þú leggur til

  • Lesaðgang að því sem á að skoða.
  • Tengilið sem þekkir kerfin.

Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.

04 / Afurðir

Það sem þú færð

  • Skriflegar niðurstöður
  • Forgangsraðaður listi yfir næstu skref
  • Yfirferð á niðurstöðunum með þér

05 / Hlíting

Hvað niðurstöðurnar styðja

Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:

NIS2
Ráðstafanir skulu prófaðar og virkni þeirra metin, veikleikar meðhöndlaðir og starfsfólk þjálfað (21. gr.).
ISO/IEC 27001
Stýringar í viðauka A um tæknilega veikleika, öryggisprófanir, óháða rýni og fræðslu.
GDPR
Regluleg prófun og mat á öryggi vinnslu persónuupplýsinga (32. gr.).

Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.

06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Um Andra