Þjónusta / 07 · Retest of findings

Endurprófun

Endurprófun svarar einni spurningu um hvern veikleika: er hann lagaður? Garmur endurprófar eigin niðurstöður og niðurstöður úr skýrslu annars prófara, að því gefnu að skýrslan lýsi hvernig veikleikinn var sýndur.

Framkvæmd
Andri Pétur Hafþórsson
Umfang
Afmarkað skriflega fyrir hvert verkefni
Heimild
Skrifleg, áður en prófun hefst
Afurð
Skýrsla með sönnun og ráðleggingum
Verð
Fast tilboð eftir afmörkun

01 / Umfang

Hvað felst í endurprófun

01

Veikleiki fyrir veikleika

Hver skráður veikleiki er prófaður aftur með sömu aðferð og sýndi hann upphaflega.

02

Skýr niðurstaða

Lagaður, ekki lagaður eða lagaður að hluta. Sönnun fylgir hverri niðurstöðu.

03

Ekkert nýtt umfang

Endurprófun leitar ekki að nýjum veikleikum. Hún nær aðeins til þess sem skýrslan skráði.

02 / Reglur

Reglur um framkvæmd

Regla 01

Skrifleg heimild

Engin prófun hefst án hennar.

Regla 02

Nafngreint umfang

Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.

Regla 03

Sönnun

Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.

03 / Verkefnið

Umfang, lengd og það sem þarf

Dæmi um umfang

  • Skýrsla frá Garmi: allir skráðir veikleikar.
  • Skýrsla frá öðrum prófara: þeir veikleikar sem þú velur.

Hvað ræður lengd

Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.

  • Stærð umfangsins: fjöldi kerfa, hlutverka og vistfanga.
  • Hversu flókið kerfið er og hversu vel það er skjalað.
  • Hvort aðgangar og gögn eru til reiðu þegar vinna hefst.

Það sem þú leggur til

  • Upprunalegu skýrsluna, með skrefum til að endurgera hvern veikleika.
  • Skriflega heimild.
  • Yfirlit yfir hvað var lagað og hvernig.

Endurprófun

Endurprófun sem er innifalin í prófun frá Garmi stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.

Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.

Lægra verðtilboð býðst ef þú samþykkir skriflega að við prófun á því sem snýr út á netið megi nota ódýrari gervigreindarlíkön þar sem rekstraraðili líkansins getur geymt það sem því er sent. Sjá spurt og svarað.

04 / Afurðir

Það sem þú færð

  • Staða hvers veikleika: lagaður, ekki lagaður eða lagaður að hluta
  • Sönnun fyrir hverri niðurstöðu
  • Yfirferð á niðurstöðunum með þér
Sjá dæmi um skýrslu
Færsla í skýrsluUppbygging
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað:       lýsing á veikleikanum
hvar:       kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun:     hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring:  ráðlegging um úrbætur

05 / Hlíting

Hvað niðurstöðurnar styðja

Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:

NIS2
Ráðstafanir skulu prófaðar og virkni þeirra metin, veikleikar meðhöndlaðir og starfsfólk þjálfað (21. gr.).
DORA
Prófunaráætlun fyrir upplýsingakerfi, þar á meðal veikleikamat og innbrotsprófanir (24. og 25. gr.). Ógnamiðaðar prófanir (TLPT, 26. gr.) lúta sérstökum kröfum og falla utan þessa yfirlits.
ISO/IEC 27001
Stýringar í viðauka A um tæknilega veikleika, öryggisprófanir, óháða rýni og fræðslu.
PCI DSS
Innbrotsprófanir og staðfesting á lagfæringum (krafa 11.4). Ársfjórðungslegar ytri skannanir viðurkennds skönnunaraðila (ASV) falla utan þessa yfirlits.

Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.

06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Um Andra